Færsluflokkur: Bloggar

Undirskrift til góða?

Hvert ætli hafi verið innihald þessara sáttmála?  Ætli hann sé á þeim nótum að hægt sé að sætta sig við hann eða ætli hann sé eins og margt það sem kemur frá Evrópusambandinu, algjörlega óásættanlegt.
mbl.is Skrifað undir nýjan sáttmála ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rafmagnsleysi

Ekki veit ég hvort þessi bilun hefur valdið rafmagnsleysi á heimilum landsmanna, en ég væri alveg til í að fara að upplifa rafmagnsleysi aftur líkt og hérna áður fyrr.  Þó er ég ekki viss um að vikulangt rafmagnsleysi líkt og varð raunin í óveðri sem gekk yfir landið í byrjun níunda áratugarins sé á óskalistanum, en í því óveðri var maður að vísu með rafmagnskyndingu svo það var ekki um annað að ræða en yfirgefa heimilið á meðan gert var við rafmagnslínurnar sem slógu margoft saman og staurarnir kubbuðust niður margir hverjir.
mbl.is Alvarlegar bilanir í flutningskerfi Landsnets
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að? Er þetta eðlilegt?

Já hef velt þessu fyrir mér í nokkurn tíma, en ætli það sé eitthvað að manni ef maður vill helst vaka á næturnar?  Hef alla tíð fundið fyrir meiri þörf til að vaka á kvöldin eða næturnar en eftir því sem maður eldist hefur þetta þróast út í það að maður vill vaka lengur fram eftir nóttu með hækkandi aldri og sofa frekar fram undir hádegi.  Sumir tala um að fólk sé kvöldsvæft og aðrir morgunsvæfir en þar sem í mínu tilfelli er þetta að þróast út í að snúa sólarhringnum alveg við velti ég því fyrir mér hvort þetta sé eðlileg þróun þar sem mér er farið að standa á sama um hvort ég missi af einhverju sem gerist á morgnana til að ég geti sofið.

Góður ásetningur í þessum reglum

Svona reglur styð ég.  Vona bara að stjórnvöld verði fljót til og innleiði þessar reglur sem fyrst á Íslandi ef þau eru ekki þegar búin að því.
mbl.is Bann lagt við misvísandi auglýsingum innan ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tækifæri?

Nú ættu íslensk stór fyrirtæki að vera fljót til og styrkja keppnina og koma Íslenskum liðum inn í þessa keppni sem þau eiga líklega meira erindi í en evrópukeppni eða meistarakeppni ef þau vilja ná langt.
mbl.is Skandinavíudeildin flautuð af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólamistök Akureyrarbæjar

Í dag var ég að keyra um miðbæ Akureyrar og tók eftir trénu sem kemur frá Randers, vinabæ Akureyrar á hverju ári, stóð það á torginu eitt og yfirgefið og vantaði allan sjarma yfir það og umhverfið.  Vil ég meina að hitalaginnar í miðbænum ættu ekki að liggja í miðju torgsins, heldur ætti Akureyrarbær að sjá sóma sinn í að hafa snjó í kringum tréð á meðan það er.

Annars hef ég verið að hjálpa til í flutningum í mest allan dag og er ekki nema vika síðan ég var að aðstoða í síðustu flutningum. Vona ég að öllum flutningum sé lokið þá í bili sem ég tek þátt í.

Komið er að því að maður fari að dreifa jólakortunum, þau fyrstu voru send með pósti í dag.  Þarf ég þá bara að fara að dreifa þeim sem fara hér innanbæjar og næsta nágrenni bráðlega og þá er ég næstum búinn að ljúka öllu fyrir jólin, bara eftir að kaupa gjafir handa nokkrum börnum í viðbót sem ég gef.


Sniðugur

Ekki er þetta nú til eftirbreytni hjá Vífil en get ekki sagt annað en þetta hafi verið sniðugt hjá honum, hefði ég nýtt tækifærið ef ég næði í Bush um að tala við hann um hvað mér finnst Bandaríkin vera að gera rétt og rangt í heimsmálunum.  Man ég eftir að fyrir nokkrum árum var eitthvað númer sem gekk manna á milli sem tengdist hvíta húsinu en það var öðru hvoru megin við árið 2000.
mbl.is Skagapiltur pantaði viðtal við Bush
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gerist það aftur

Get nú ekki sagt annað en ég dáist af Rússum fyrir að taka upp gamla siði frá tímum Sovétríkjanna þó ekki sé hægt að lesa neitt út úr þessum gjörðum þeirra nema ógnun við önnur lönd.  Kannski fer járntjaldið að rísa aftur enn austar og Evrópa að skiptast á ný í austur og vestur á nýjum landamærum, allt eru þetta þó hugleiðingar og langt frá raunveruleikanum að minni vitund, þó mér sýnist að aldrei megi útiloka neitt þegar Rússar eiga í hlut.
mbl.is Rússar útvíkka heræfingar sínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umferðamannvirki

Verð ég nú að segja að Hringtorg eru að mínu viti að stóru leyti mjög góður kostur nema í reykjavík þar sem mér finnst umferðin vera orðin of mikil til að þau geti verið til góðs fyrir utan austan við Breiðholt þar sem þau eru góður kostur.  En stærsti kosturinn sem ég sé við ljósin er hvað þau geta virkað vel gegn hraðakstri í flestum tilfellum, þó til séu dæmi um að ökumenn sem keyra of hratt fari yfir á rauðu.  Sé ég því bæði kosti og galla við báðar útfærslur og persónulega verð ég að segja að mér líkar ljósin betur nema á þeim stöðum á höfuðborgarsvæðinu þar sem búið er að koma fyrir beygjuljósum í allar áttir og helst líka gegn akstursstefnu.  Verð ég samt að segja að mislæg gatnamót er eitthvað sem myndi bara ganga á höfuðborgarsvæðinu en hvergi annarsstaðar.
mbl.is Hringtorg í stað ljósa draga úr slysum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki rétt með msn

Í nokkur ár hefur það verið mögulegt að vera á msn í símanum og því ekki sá kostur sem ég myndi veðja á auglýsinga herferð um kosti þriðju kynslóðar síma.  Minnir að það hafi verið 2003 sem ég varð fyrst var við þann möguleika að hægt var að fá msn í símann sinn.
mbl.is Nova boðar breytta tíma – öll netnotkun í farsímann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Egill Andrés Sveinsson

Höfundur

Egill Andrés Sveinsson
Egill Andrés Sveinsson

Akureyringur,  K.A. maður, hugsjónamaður og fótboltafíkill

Spurt er

Myndir þú nota rafmagnsbíl þó hann væri verulega kraftminni en bensín bílar og kæmist ekki yfir 70 km?
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 057
  • 060

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 650

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband