14.4.2008 | 18:11
14.04.08
Jæja var að skoða tónlistar safnið mitt í gær og komst að því að inn á milli á ég marga gullmola, leið í gær þegar ég var að hlusta á safnið og velja lögin að ég væri komin aftur í hlutverk tónlistarstjóra(plötusnúðs) og nema fannst allt heppnast mun betur og langaði helst að smala saman fólki og vera með smá dansiball fyrir það. ef einhver nennir að hlusta á mig spila og vantar tónlistastjóra má athuga hvort hægt er að semja.
rafgeymirin í bílnum hjá mér er að verða eitthvað lélegur og hef ég lent í því ítrekað í vetur að þurfa að láta draga bílinn í gang, fór svo eftir 17. mars minnir mig í rúmfó og keyptir mér start kappla og fæ því orðið bara start núna, enda miklu fljótlegra, og hef ég svo gaman að þessu að mér langar ekkert að kaupa mér nýjan geymi í bílinn þó þrýst sé mikið á mig. alltaf gaman að einhverju veseni finnst mér.
las í gærkvöldi á mbl.is að 20 mínúna púl við heimilisstörf voru metin til jafns við 20 mínútna hreyfingu samkvæmt einhverri könnun til að halda geðheilsunni góðri en ekkert var sagt beint um hvort púlið við heimilisstörfin kæmi í stað hreyfingarinnar í þjálfun líkamans, sem ég efast um, en sá að einhvejir ætluðu að mér sýndist að vera góðir við konuna sína og færa þeim þær fréttir að þær þyrftu ekki að vera jafnduglegar við að hreyfa sig ef þær héldu sér bara við heimilisstörfin.
Meginflokkur: Vinir og fjölskylda | Aukaflokkar: Lífstíll, Tónlist | Facebook
Um bloggið
Egill Andrés Sveinsson
Tenglar
Fréttasíður
Fréttasíðurnar sem ég heimsæki reglulega
Spurt er
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sorry , þetta með heimilisstörfið virkar ekki. Ég las þetta líka og ákvað að taka eldavélina í gegn og athuga hvort það virkari með andlegu heilsuna. Og jú, auðvitað svínvirkar það. Maður er svo ánægður þegar svona leiðindaverki er lokið. Hafðu það gott.
Anna Guðný , 14.4.2008 kl. 18:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.