Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
20.4.2008 | 03:12
Aldrei fór ég í strætó
Jæja við Frúin ætluðum að taka strætó í gær niður í bæ og vorum frekar sein fyrir svo ekki var mikið pælt í hvert við þurftum að fara til að taka vagninn. Er við komum svo á stoppistöðina tók við stutt bið efir að vagninn kom og kom þá akkúrat í gagnstæða átt við þá stoppstöð sem við vorum á og engin stoppistöð hinumegin við götuna. Er við löbbuðum aftur heim á leið fékk ég smáskammir fyrir að vita ekki hvar vagninn kæmi og hvaða stoppistöð við þyrftum að vera á, á meðan hló ég bara að þessu og sagði að þetta hlyti þá að vera ferðin "Aldrei fór ég í strætó" fyrst við gátum ekki tekið vagninn.
Í gærkvöldi var svo bróðir minn með partý í tilefni af afmælinu sínu og tókum við strætó þá niður í bæ eftir að hafa farið vel yfir leiðarbókina hjá strætó og skoða vel hvar hann ætti að koma svo engin ruglingur yrði nú í þetta sinn sem og varð ekki. Og komumst við því niður í bæ vel tímalega. Eftir smátíma hringdi ég þó í afmælisbarnið og athugaði hvort ekki væri í lagi að mæta aðeins fyrr enda var ég með gjöfina hans í poka og ekkert þægilegt að halda á honum um allan bæ, Var hann þá að koma úr sturtu en bara nokkrar mínútur í að veislan átti að byrja. En hann komst þó á réttum tíma og svo var setið við fögnuð fram eftir kvöldi, Frúin fór að vísu eftir klukkutíma viðveru eða svo enda þreytt í hendinni en sjálfur sat ég nær allan tímann enda margir sem þurfti að spjalla við og nokkrar persónur þarna sem maður hefur varla séð í fjölda ára þ.e. gamlir vinnufélagar síðan um og kringum 2000. e. kr. svo maður sé nákvæmur. Eftir veisluna fór maður svo og hitti Kidda félaga og tölti með honum áleiðis heim.
Í morgun vaknaði maður svo vel þunnur og ekki til í neitt en fljótlega hringdi síminn hjá Frúnni og þar var yngri bróðir hennar að boða heimsókn svo maður varð að stökkva til og reyna koma sér í ástand til að taka á móti gestum, en hann var að koma með son sinn sem hann eignaðist nú um jólin og leyfa Frúnni að sjá hann og koma með boðskort í Skírnina hjá honum. Eftir heimsóknina leið mér samt lítið betur af þynnkunni svo ég lagði mig í þrjá til fjóra tíma og vaknaði allur endurnærður, og drifum við Ellý okkur þá út í góða veðrið. Kíktum upp í Kjarnaskóg og fórum svo í kaffi til ömmu en hún átti afmæli í gær ásamt Tryggva félaga mínum. Fengum þar pönnukökur og mjólk og hittum frænku þar fyrir frænku mína frá Ólafsfirði, en náði ég ekki alveg hvernig hún væri skyld mér. Svo í kvöld var bara spilað og haft það rólegt, en þegar þetta er ritað er komin miðnótt.
16.4.2008 | 20:58
16.04.08
Jæja í dag um hádegi var ég að hugsa um hvað ég ætti að fá mér að borða leit ég inní ísskáp og sá þar nokkrar pylsur sem urðu afgangs í gærkvöldi, ákvað að nýta þær því og fór þá að hugleiða hvernig ég myndi elda þær, varð úr að ég skellti samlokugrillinu upp á bekk til að hita brauðin og fór svo út á svalir að kveikja á grillinu og hita þær í því. Voru þá tvær ungar stelpur staddar á göngustígnum sem liggur ofan við húsið og kölluðu til mín og spurðu mig hvernig væri að búa í svona stóru húsi, töldu þær víst að einungis væri bara ein eða tvær íbúðir í húsinu. Leiðrétti ég þær og leiddi þær í allan sannleika um hve margar íbúðir væru í þessu húsi og fór inn að sækja pylsurnar eftir að hafa kveikt á grillinu. Frúin var eitthvað forvitin að vita við hvern eða hverja ég hefði verið að tala við og fannst þetta frekar fyndið er ég sagði henni það, og lét sig dreyma um hvernig væri best að skipta húsinu til dæmis upp í tvær íbúðir eða hvernig væri ef allt húsið væri bara sem ein íbúð.
Frúin skrapp í dag niðrá Heilsugæslu og fór ég fyrst í sparisjóðinn að sinna erindi og hitti á leiðinn aftur í bílinn félaga minn Hjört og spjallaði smá stund við hann en þorði ekki að spjalla of lengi því ég vissi uppá mig skömmina að hafa gleymt að koma klukkunni fyrir á sínum stað, skrapp því í heimsókn til að skila skóm sem ég hafði fengið lánaða af dóttur Sveitastelpunnar í Ránargötunni fyrir Áslaugu er við fórum í fermingaveislu er hún var hér síðast. Eftir það lagði ég leið mína aftur í miðbæinn til að njóta sólarinnar, hringdi ég í félaga minn Pétur og athugaði hvort hann mætti vera að því að koma smá stund út í sólina og spjalla enda nokkuð liðið síðan ég hitti hann síðast, sagðist hann mundi kíkja ef hann sæi lausa stund, sem og hann gerði og spjölluðum við aðeins og lögðum grundvöll að því að við færum að hittast, var hann svo rokinn enda í vinnunni. Sat ég áfram í sólinni nokkra stund og lagði svo leið mína eitthvað inní göngugötu, enda bjóst ég við að frúin færi að verða búinn sem og stóðst því varla var ég komin að heilsugæslunni áður en síminn hringdi og hún tilkynnti mér að hún væri loksins búinn.
Í kvöld fórum við svo á Greifann að borða með fjörfiskunum, hópi fólks sem hittist reglulega og hefur það gaman. Var maturinn mjög góður og fyrir mitt leyti get ég ekki sagt annað en skrýtin því virtist botnlaus og kláraði hverja sneiðina á fætur annarri og fékk mér meira en ég hafði í raun trú á að ég gæti borðað.
Er nú komin heim í afslöppun og hvíld eftir allan matinn og mun svo fara á morgun og gera eitthvað til að það setjist ekki of mikið á mig eftir þessa sprengju af mat sem líkaminn fékk í formi flatbaka
14.4.2008 | 18:11
14.04.08
Jæja var að skoða tónlistar safnið mitt í gær og komst að því að inn á milli á ég marga gullmola, leið í gær þegar ég var að hlusta á safnið og velja lögin að ég væri komin aftur í hlutverk tónlistarstjóra(plötusnúðs) og nema fannst allt heppnast mun betur og langaði helst að smala saman fólki og vera með smá dansiball fyrir það. ef einhver nennir að hlusta á mig spila og vantar tónlistastjóra má athuga hvort hægt er að semja.
rafgeymirin í bílnum hjá mér er að verða eitthvað lélegur og hef ég lent í því ítrekað í vetur að þurfa að láta draga bílinn í gang, fór svo eftir 17. mars minnir mig í rúmfó og keyptir mér start kappla og fæ því orðið bara start núna, enda miklu fljótlegra, og hef ég svo gaman að þessu að mér langar ekkert að kaupa mér nýjan geymi í bílinn þó þrýst sé mikið á mig. alltaf gaman að einhverju veseni finnst mér.
las í gærkvöldi á mbl.is að 20 mínúna púl við heimilisstörf voru metin til jafns við 20 mínútna hreyfingu samkvæmt einhverri könnun til að halda geðheilsunni góðri en ekkert var sagt beint um hvort púlið við heimilisstörfin kæmi í stað hreyfingarinnar í þjálfun líkamans, sem ég efast um, en sá að einhvejir ætluðu að mér sýndist að vera góðir við konuna sína og færa þeim þær fréttir að þær þyrftu ekki að vera jafnduglegar við að hreyfa sig ef þær héldu sér bara við heimilisstörfin.
8.4.2008 | 14:08
Aldrei fór ég suður
28.2.2008 | 19:23
Fyrsta færslan í ár 28.02.08. Til heiðurs Queen og Paul Rogers
jæja, nýtt ár byrjar með ágætum, nýjir kjarasamningar í höfn og allt viðist stefna í rétta átt, en einhvrnveginn heyrðist mér á kennurum og nú síðast á starfsmönnumríkis og bæja að þessir hópar séu líklegir til að sprengja kjarasamningana sem lokið er við þó við vonum hið besta og fólkið stilli kröfum sínum í hóf.
hljómsveitin Queen ásamt Paul Rogers er nýbúin að senda frá sér lagið 'Say It's Not True' og hljómar það mjög vel, myndbandið er öllu sorglegra og vekur okkur til umhugsunar um hver erfitt getur verið hjá fólkinu í Afríku. Set hérna inn myndbandið svo fólk geti séð það og þeir heyrt lagið sem ekki hafa heyrt það eða kannast ekki við það.
Set einnig inn heimagert hljómleika myndband fyrir neðan.
24.12.2007 | 02:28
Aðfangadagur jóla
Þá er hann kominn, dagurinn sem flestir og ef ekki allir bíða eftir allt árið. Dagurinn er nefnilega aðfangadagur jóla, dagurinn sem börnin bíða eftir til að mega opna jólapakkana, verslunarfólk bíður eftir til að geta slakað á eftir jólaösina og dagurinn sem vonandi allir fá gott að borða á og njóta góðra stunda með fjölskyldunni.
Óska öllum gleðilegra jóla
19.12.2007 | 15:33
19.12.07. alveg að koma jól
13.12.2007 | 15:48
Foktjón
Fjárhúsþak fauk í Árneshreppi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.12.2007 | 01:58
Jólamistök Akureyrarbæjar
Í dag var ég að keyra um miðbæ Akureyrar og tók eftir trénu sem kemur frá Randers, vinabæ Akureyrar á hverju ári, stóð það á torginu eitt og yfirgefið og vantaði allan sjarma yfir það og umhverfið. Vil ég meina að hitalaginnar í miðbænum ættu ekki að liggja í miðju torgsins, heldur ætti Akureyrarbær að sjá sóma sinn í að hafa snjó í kringum tréð á meðan það er.
Annars hef ég verið að hjálpa til í flutningum í mest allan dag og er ekki nema vika síðan ég var að aðstoða í síðustu flutningum. Vona ég að öllum flutningum sé lokið þá í bili sem ég tek þátt í.
Komið er að því að maður fari að dreifa jólakortunum, þau fyrstu voru send með pósti í dag. Þarf ég þá bara að fara að dreifa þeim sem fara hér innanbæjar og næsta nágrenni bráðlega og þá er ég næstum búinn að ljúka öllu fyrir jólin, bara eftir að kaupa gjafir handa nokkrum börnum í viðbót sem ég gef.
3.12.2007 | 18:53
Merkilegast við árið ásamt öðru
Um bloggið
Egill Andrés Sveinsson
Tenglar
Fréttasíður
Fréttasíðurnar sem ég heimsæki reglulega
Spurt er
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar